Monday, November 10, 2008

Garpalaugardagur s.l. Laugardag

Síðastliðin laugardag var haldinn Garpalaugardagur fyrir Eldri og Yngri deild trúarskólans og var mætingin voða góð. Þetta byrjaði allt með hugvekju frá Bróður Jens Andersen frá Kaupmannahöfn sem talaði um postulana og það sem við getum lært um frelsarann úr nýja testamenntinu. Eftir hugvekjuna var svo pöntuð Pizza fyrir allan hópinn sem við fórum létt með að klára! en eftir að allir höfðu troðið sig út á pizzu var haldið í Maríuhella þar sem við fórum í feluleik í hinum fullkomna feluleikjahelli. Fyrir þá sem ekki skilja hvernig þannig lagað er hægt að gera í helli þá mælum við með að þið fylgist með hvað er næst á dagskrá hjá okkur og komið svo næst þegar hellaferð er plönuð (sem ætti að vera bara handan við hornið þar sem þetta sló alveg í gegn!)
Því miður gleymdist alveg að taka myndir....ó well...

No comments: