Monday, January 19, 2009

Selfoss og Sundferð


Fimtudaginn 22. janúar förum við austur á Selfoss eins og venjan er á öðru vinakvöldi hvers mánaðar. Allir eru velkomnir með og þeir sem eru bílandi eru beðnir að koma á bílunum sínum ef við skildum þurfa á fleirri sætum að halda. Annars eru allir beðnir að mæta uppí krikju klukkan 18:30 á fim svo að við getum lagt tímanlega af stað.


Fimtudaginn 29. janúar verður svo sundferð fyrir alla í útrás og vini þeirra (eða bara alla á aldrinum 18-30 ára sem vilja koma!)


Dags: Fimmtudagur, 29.janúar, 2009
Tími: 19:00-22:00
Staður: Laugardalslaug
Hittumst við afgreiðsluna í Laugardalslaug klukkan sjö á fimmtudagskvöldið 29.janúar og skellum okkur í sund í boði Útrásarinnar. Njótum þess svo að vera í góðra vina hópi!
Sjáumst Hress!

Thursday, December 11, 2008

Þjónusta og jólavinakvöld!


GLEÐILEG JÓL!!
Útrás, vikuna 14-20.Desember
Jæja Elskurnar mínar,
Það er komið að lokum ársins 2008 og við endum auðvitað með stæl.
Fyrst er það þjónustuverkefnið sem boðið verður uppá þriðjudaginn 16.desember, klukkan 18:30 að Ásabraut 2, í samvinnu við Piltafélagið og Stúlknafélagið.
Það verður boðið upp á ýmislegt þetta kvöld:

-Fatasöfnun…..Flestir eiga einhver föt sem ekki eru í notkun lengur og viljum við biðja ykkur að koma endilega með þessi föt, sama í hvaða ástandi þau eru. Við verðum með nálar og tvinna á staðnum til að festa á tölur og loka fyrir göt og göngum svo fallega frá öllu saman til að senda til Rauða krossins.
-Dótasöfnun…..Ef einhver ykkar eiga ný eða notuð leikföng í góðu ástandi komið þá endilega með þau, við pökkum þeim inn og förum svo með niður í Kringlu til að setja undir jólatré mæðrastyrksnefndar.
-Gosdósasöfnun…Ef þið eigið gosdósir í kjallaranum hjá ykkur þá er góður tími til að losa sig við þær núna, við söfnum saman dósum heiman frá okkur og búum undir að skila inn til Sorpu, en allur ágóði fer til styrktar Rauða krossins. Ef fólk er í stuði og veðrið er gott þá er þetta einnig kjörið tækifæri til að fara í göngutúr, skoða jólaljósin, banka uppá hjá nágrönnunum og safna frá þeim dósum og flöskum líka.
-Kortagerð……. Þó að flestir meðlimir kirkjunnar búi á höfuðborgarsvæðinu þá eru þó einstakir meðlimir úti á landi sem við ætlum að senda jólakveðjur. Fyrir þá sem vilja bara sitja við góða jólatónlist, drekka kakó og föndra þá er þetta kjörið!


Jólavinakvöld verður svo haldið 18.desember heima hjá stelpunum á Reykjavíkurvegi 22. 2.hæð. 220 Hafnarfirði.
Við hefjum kvöldið klukkan 20:00 en ykkur er velkomið að mæta klukkan 19:30.
Þetta verður bara svona kósý, jólatónlist, smákökur og kakó, góður félagsskapur og svo er það pakkaleikurinn góði (eða vondi, það fer víst eftir smekk fólks, hvort því finnist gott að stela jólgjöfum annarra eða ekki, við sjáum til!)
Það eina sem þið þurfið að mæta með er innpakkaður pakki að verðmæti 500.-kr eða minna og glampandi bros!

Frekari uppl.
Unnur s.844-0426

Wednesday, December 10, 2008

Boðskapur Uchdorf Forseta

Sem fyrrverandi atvinnuflugmaður í ferðaþjónustu, þekkir Dieter F. Uchtdorf forseti það hversu nauðsynlegt það er að fylgja steðfestri áætlun til að vera öruggur um stefnuna. Í ráðgjöf sinni hinn 7. september til meðlima frá 135 stikum, vitnaði annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu um gildi þess að fylgja innblásinni andlegri stefnu á stundum umbrotasamri ævi hvers manns.„Ekkert getur sundrað fjölskyldu sem er viljug til að þjóna Drottni og halda boðorð hans,“ sagðu Uchtdorf forseti.

hér eru nokkrir punktar frá Uchdorf forseta.

Uchtdorf forseti sagði að fyrsta skrefið til að stýra för sinni af öryggi í ölgusjó lífsins væri að hafa gild musterismeðmæli.

Annað skrefið er að nema orð Guðs daglega.

Hið þriðja, tala við föðurinn á himnum daglega.

Kraftur veitist með blessunum Drottins

Sýnið kærleik og samúð

‘Skuldbindið ykkur því sem er raunverulegt’

-UNDIRBÚAST FYRIR TRÚBOÐ
-Trúfastir meðlimir þurfa engu að kvíða. Þeir hljóta kraft frá blessunum Drottins og gjöf heilags anda.
-KIRKJAN ER ÁFRAM BYGGÐ Á FJÖLSKYLDUNNI

Fyrir þá sem vilja lesa meira af ræðu Uchdorf forseta þá er hana að finna á

http://www.kirkjajesukrists.is/frettir/article-view/article/serstoek-rastefna.html

Wohlgemuth Hjónin farin heim

Kæru vinir,
Mig tekur það sárt að tilkynna ykkur að Öldungur Wohlgemuth fékk hjartaáfall á Akureyri um helgina.Í samráði við trúboðsforseta og lækna Kirkjunnar í London og Salt Lake City var ákveðið að Wohlgemuth hjónin færu heim með fyrstu flugvél. Þau yfirgáfu landið nú í morgun og munu vera komin heim í fyrramálið að okkar tíma.
Wohlgemuth hjónin hafa gert mjög margt gott fyrir kirkjuna í þau 2 ár sem þau hafa verið hér, má þar nefna uppbyggingu bókasafns, tiltekt í allri sagnaritun, mynda og myndbanda safni kirkjunnar, vinna við að koma öllum vonarstjörnum og Líahona blöðum á tölvutækt form, þjónusta í greinarráði, stuðningur við allt söngstarf greinarinnar, og svo margt margt fleirra.
Þeirra verður sárt saknað.
Kær kveðjaÓlafur Einarsson greinarforseti

Monday, December 1, 2008

DESEMBER ER KOMINN!!

halló halló elskurnar mínar og Gleðileg Jól!!

Svona er dagatalið fyrir Desember.

Þrið 2.des er Trúarskóli klukkan 20:00
Binni Lee á Afmæli þannig að þeir sem vilja kíkja til hans eftir trúarskóla geta hist uppí kirkju og við förum þá strax klukkan 21:00 og syngjum fyrir hann ammalissönginn.

Fim 4.des er kóræfing klukkan 19:30 og svo Vinakvöld klukkan 20:00
Fös 5.des er svo Jólakvöld Líknarfélagsins fyrir þær dömur sem því tilheira, endilega komið með bolla og disk, smá desert til að deila og gjöf sem ekki kostaði meira en 500.-kr í pakkaleikinn okkar! Fjörið byrjar klukkan 19:30.

Þrið 9.des er Trúarskóli klukkan 20:00 en þeir sem vilja hittast með smákökur og piparkökur klukkan 19:30 eru velkomnir. Þetta verður síðast trúarskólabekkur ársins og við endum árið með stæl!

Fim 11.des verður kóræfing klukkan 19:30 OG svo síðasta spilakvöld ársins klukkan 20:00 svo hafið augun og eyrun opin fyrir því sem koma skal, þetta verður hið fínasta spilakvöld ef marka má veðurspánna!

Sun 14.des verður lukkupottur eftir kirkju (Sakramenntissamkoma byrjar klukkan 13:00) og byrjar hann klukkan ca14:15 en þar á eftir verður hin árlega jólakvöldvaka æðsta forsætisráðsins, sem ætti að koma öllum í svakalegt jólaskap!

þrið 16.des er planað að hafa alsherjar þjónustuverkefni! Er til betri leið til að minnast fæðingu Frelsarans en að fylgja fordæmi hans með þjónustu við meðbræður okkar, ég held ekki! ef jólakvöldvakan þann 14.des var ekki nógu jólaleg þá ætti þetta að koma hvaða skruggi sem er í jólafíling! hittumst uppí kirkju klukkan 18:30.

Fim 18.des er svo Jólavinakvöld klukkan 20:00 á Reykjvíkurvegi 22, 2.hæð í Hafnarfirði. Þetta verður svolítið eins og litlu jólin hérna í gamla daga, spilum spil, singjum jólalög og förum í pakkaleik, allir ættu að mæta með pakka sem ekki má kosta meira en 500.- kr innpakkaðan svo við getum farið í pakkaleikinn góða! Kakó og smákökur verða á boðstólnum!
Þeir sem vilja mæta á kóræfingu eru einnig velkomnir á Reykjavíkurveg 22, 2.hæð en kóræfing verður þar þetta kvöldið, sama tíma og venjulega, klukkan 19:30.


Kórinn syngur svo á Laugarveginum Laugardaginn 20.des kl 19:00 og aftur Þriðjudaginn 23.des.



English Summary

Institute is at 8pm on Tuesdays the 2nd and 9th of Dec. please come at 7:30 on the 9th and bring some cookies if you like.

Relief Society has their annual Christmas fun times on the 5th at 7:30pm. RS sisters are incouraged to come!

Outreach activities for this month are on Thursdays the 4th and 11th of December at 8pm following singing practice at 7:30, everyone is welcome!

on the 16th we will have a service project for those who want to participate it starts at 6:30pm and we will meet up at church.

the 18th of December will be our Christmas friend home evening at Reykjavíkurvegur 22. 2nd floor, in Hafnarfjörður. its at 8pm and for those who want to sing with us on Laugarvegur on the 20th and 23rd we will also have practice at Reykjavíkurvegur 22 at 7:30pm...everyone is welcome!

Monday, November 10, 2008

Garpalaugardagur s.l. Laugardag

Síðastliðin laugardag var haldinn Garpalaugardagur fyrir Eldri og Yngri deild trúarskólans og var mætingin voða góð. Þetta byrjaði allt með hugvekju frá Bróður Jens Andersen frá Kaupmannahöfn sem talaði um postulana og það sem við getum lært um frelsarann úr nýja testamenntinu. Eftir hugvekjuna var svo pöntuð Pizza fyrir allan hópinn sem við fórum létt með að klára! en eftir að allir höfðu troðið sig út á pizzu var haldið í Maríuhella þar sem við fórum í feluleik í hinum fullkomna feluleikjahelli. Fyrir þá sem ekki skilja hvernig þannig lagað er hægt að gera í helli þá mælum við með að þið fylgist með hvað er næst á dagskrá hjá okkur og komið svo næst þegar hellaferð er plönuð (sem ætti að vera bara handan við hornið þar sem þetta sló alveg í gegn!)
Því miður gleymdist alveg að taka myndir....ó well...

Friday, September 26, 2008

FRUMSÝNING!!

Nýjasta myndin okkar verður Frumsýnd á undan trúarskólanum Þriðjudaginn 30.September.

Fjölmennum og njótum þessa meistaraverks saman!


Hér er það sem verið er að segja um myndina




Þessari kvikmynd hef ég beðið eftir allt mitt líf! -Elvis


Þetta er mynd sem mun hreifa við hinum hörðustu! -Chuck Norris


Hreint meistaraverk!!!! -Allir hinir


Myndin verður, eins og áður sagði, sýnd Þriðjudaginn 30.September klukkan 19:30, rétt á undan Trúarskólanum sem handinn er á Ásabraut 2 í Garðabæ. Mætið hress með popp og gos og hláturtaugarnar tilbúnar fyrir ofurálag! Allir eru svo velkomnir í Trúarskólann klukkan 8.


Hér er slóð á trailerinn fyrir myndina

http://www.youtube.com/watch?v=OwXr0HKTgNc