Monday, December 1, 2008

DESEMBER ER KOMINN!!

halló halló elskurnar mínar og Gleðileg Jól!!

Svona er dagatalið fyrir Desember.

Þrið 2.des er Trúarskóli klukkan 20:00
Binni Lee á Afmæli þannig að þeir sem vilja kíkja til hans eftir trúarskóla geta hist uppí kirkju og við förum þá strax klukkan 21:00 og syngjum fyrir hann ammalissönginn.

Fim 4.des er kóræfing klukkan 19:30 og svo Vinakvöld klukkan 20:00
Fös 5.des er svo Jólakvöld Líknarfélagsins fyrir þær dömur sem því tilheira, endilega komið með bolla og disk, smá desert til að deila og gjöf sem ekki kostaði meira en 500.-kr í pakkaleikinn okkar! Fjörið byrjar klukkan 19:30.

Þrið 9.des er Trúarskóli klukkan 20:00 en þeir sem vilja hittast með smákökur og piparkökur klukkan 19:30 eru velkomnir. Þetta verður síðast trúarskólabekkur ársins og við endum árið með stæl!

Fim 11.des verður kóræfing klukkan 19:30 OG svo síðasta spilakvöld ársins klukkan 20:00 svo hafið augun og eyrun opin fyrir því sem koma skal, þetta verður hið fínasta spilakvöld ef marka má veðurspánna!

Sun 14.des verður lukkupottur eftir kirkju (Sakramenntissamkoma byrjar klukkan 13:00) og byrjar hann klukkan ca14:15 en þar á eftir verður hin árlega jólakvöldvaka æðsta forsætisráðsins, sem ætti að koma öllum í svakalegt jólaskap!

þrið 16.des er planað að hafa alsherjar þjónustuverkefni! Er til betri leið til að minnast fæðingu Frelsarans en að fylgja fordæmi hans með þjónustu við meðbræður okkar, ég held ekki! ef jólakvöldvakan þann 14.des var ekki nógu jólaleg þá ætti þetta að koma hvaða skruggi sem er í jólafíling! hittumst uppí kirkju klukkan 18:30.

Fim 18.des er svo Jólavinakvöld klukkan 20:00 á Reykjvíkurvegi 22, 2.hæð í Hafnarfirði. Þetta verður svolítið eins og litlu jólin hérna í gamla daga, spilum spil, singjum jólalög og förum í pakkaleik, allir ættu að mæta með pakka sem ekki má kosta meira en 500.- kr innpakkaðan svo við getum farið í pakkaleikinn góða! Kakó og smákökur verða á boðstólnum!
Þeir sem vilja mæta á kóræfingu eru einnig velkomnir á Reykjavíkurveg 22, 2.hæð en kóræfing verður þar þetta kvöldið, sama tíma og venjulega, klukkan 19:30.


Kórinn syngur svo á Laugarveginum Laugardaginn 20.des kl 19:00 og aftur Þriðjudaginn 23.des.



English Summary

Institute is at 8pm on Tuesdays the 2nd and 9th of Dec. please come at 7:30 on the 9th and bring some cookies if you like.

Relief Society has their annual Christmas fun times on the 5th at 7:30pm. RS sisters are incouraged to come!

Outreach activities for this month are on Thursdays the 4th and 11th of December at 8pm following singing practice at 7:30, everyone is welcome!

on the 16th we will have a service project for those who want to participate it starts at 6:30pm and we will meet up at church.

the 18th of December will be our Christmas friend home evening at Reykjavíkurvegur 22. 2nd floor, in Hafnarfjörður. its at 8pm and for those who want to sing with us on Laugarvegur on the 20th and 23rd we will also have practice at Reykjavíkurvegur 22 at 7:30pm...everyone is welcome!

No comments: