Thursday, December 11, 2008

Þjónusta og jólavinakvöld!


GLEÐILEG JÓL!!
Útrás, vikuna 14-20.Desember
Jæja Elskurnar mínar,
Það er komið að lokum ársins 2008 og við endum auðvitað með stæl.
Fyrst er það þjónustuverkefnið sem boðið verður uppá þriðjudaginn 16.desember, klukkan 18:30 að Ásabraut 2, í samvinnu við Piltafélagið og Stúlknafélagið.
Það verður boðið upp á ýmislegt þetta kvöld:

-Fatasöfnun…..Flestir eiga einhver föt sem ekki eru í notkun lengur og viljum við biðja ykkur að koma endilega með þessi föt, sama í hvaða ástandi þau eru. Við verðum með nálar og tvinna á staðnum til að festa á tölur og loka fyrir göt og göngum svo fallega frá öllu saman til að senda til Rauða krossins.
-Dótasöfnun…..Ef einhver ykkar eiga ný eða notuð leikföng í góðu ástandi komið þá endilega með þau, við pökkum þeim inn og förum svo með niður í Kringlu til að setja undir jólatré mæðrastyrksnefndar.
-Gosdósasöfnun…Ef þið eigið gosdósir í kjallaranum hjá ykkur þá er góður tími til að losa sig við þær núna, við söfnum saman dósum heiman frá okkur og búum undir að skila inn til Sorpu, en allur ágóði fer til styrktar Rauða krossins. Ef fólk er í stuði og veðrið er gott þá er þetta einnig kjörið tækifæri til að fara í göngutúr, skoða jólaljósin, banka uppá hjá nágrönnunum og safna frá þeim dósum og flöskum líka.
-Kortagerð……. Þó að flestir meðlimir kirkjunnar búi á höfuðborgarsvæðinu þá eru þó einstakir meðlimir úti á landi sem við ætlum að senda jólakveðjur. Fyrir þá sem vilja bara sitja við góða jólatónlist, drekka kakó og föndra þá er þetta kjörið!


Jólavinakvöld verður svo haldið 18.desember heima hjá stelpunum á Reykjavíkurvegi 22. 2.hæð. 220 Hafnarfirði.
Við hefjum kvöldið klukkan 20:00 en ykkur er velkomið að mæta klukkan 19:30.
Þetta verður bara svona kósý, jólatónlist, smákökur og kakó, góður félagsskapur og svo er það pakkaleikurinn góði (eða vondi, það fer víst eftir smekk fólks, hvort því finnist gott að stela jólgjöfum annarra eða ekki, við sjáum til!)
Það eina sem þið þurfið að mæta með er innpakkaður pakki að verðmæti 500.-kr eða minna og glampandi bros!

Frekari uppl.
Unnur s.844-0426

No comments: