Thursday, December 11, 2008

Þjónusta og jólavinakvöld!


GLEÐILEG JÓL!!
Útrás, vikuna 14-20.Desember
Jæja Elskurnar mínar,
Það er komið að lokum ársins 2008 og við endum auðvitað með stæl.
Fyrst er það þjónustuverkefnið sem boðið verður uppá þriðjudaginn 16.desember, klukkan 18:30 að Ásabraut 2, í samvinnu við Piltafélagið og Stúlknafélagið.
Það verður boðið upp á ýmislegt þetta kvöld:

-Fatasöfnun…..Flestir eiga einhver föt sem ekki eru í notkun lengur og viljum við biðja ykkur að koma endilega með þessi föt, sama í hvaða ástandi þau eru. Við verðum með nálar og tvinna á staðnum til að festa á tölur og loka fyrir göt og göngum svo fallega frá öllu saman til að senda til Rauða krossins.
-Dótasöfnun…..Ef einhver ykkar eiga ný eða notuð leikföng í góðu ástandi komið þá endilega með þau, við pökkum þeim inn og förum svo með niður í Kringlu til að setja undir jólatré mæðrastyrksnefndar.
-Gosdósasöfnun…Ef þið eigið gosdósir í kjallaranum hjá ykkur þá er góður tími til að losa sig við þær núna, við söfnum saman dósum heiman frá okkur og búum undir að skila inn til Sorpu, en allur ágóði fer til styrktar Rauða krossins. Ef fólk er í stuði og veðrið er gott þá er þetta einnig kjörið tækifæri til að fara í göngutúr, skoða jólaljósin, banka uppá hjá nágrönnunum og safna frá þeim dósum og flöskum líka.
-Kortagerð……. Þó að flestir meðlimir kirkjunnar búi á höfuðborgarsvæðinu þá eru þó einstakir meðlimir úti á landi sem við ætlum að senda jólakveðjur. Fyrir þá sem vilja bara sitja við góða jólatónlist, drekka kakó og föndra þá er þetta kjörið!


Jólavinakvöld verður svo haldið 18.desember heima hjá stelpunum á Reykjavíkurvegi 22. 2.hæð. 220 Hafnarfirði.
Við hefjum kvöldið klukkan 20:00 en ykkur er velkomið að mæta klukkan 19:30.
Þetta verður bara svona kósý, jólatónlist, smákökur og kakó, góður félagsskapur og svo er það pakkaleikurinn góði (eða vondi, það fer víst eftir smekk fólks, hvort því finnist gott að stela jólgjöfum annarra eða ekki, við sjáum til!)
Það eina sem þið þurfið að mæta með er innpakkaður pakki að verðmæti 500.-kr eða minna og glampandi bros!

Frekari uppl.
Unnur s.844-0426

Wednesday, December 10, 2008

Boðskapur Uchdorf Forseta

Sem fyrrverandi atvinnuflugmaður í ferðaþjónustu, þekkir Dieter F. Uchtdorf forseti það hversu nauðsynlegt það er að fylgja steðfestri áætlun til að vera öruggur um stefnuna. Í ráðgjöf sinni hinn 7. september til meðlima frá 135 stikum, vitnaði annar ráðgjafi í Æðsta forsætisráðinu um gildi þess að fylgja innblásinni andlegri stefnu á stundum umbrotasamri ævi hvers manns.„Ekkert getur sundrað fjölskyldu sem er viljug til að þjóna Drottni og halda boðorð hans,“ sagðu Uchtdorf forseti.

hér eru nokkrir punktar frá Uchdorf forseta.

Uchtdorf forseti sagði að fyrsta skrefið til að stýra för sinni af öryggi í ölgusjó lífsins væri að hafa gild musterismeðmæli.

Annað skrefið er að nema orð Guðs daglega.

Hið þriðja, tala við föðurinn á himnum daglega.

Kraftur veitist með blessunum Drottins

Sýnið kærleik og samúð

‘Skuldbindið ykkur því sem er raunverulegt’

-UNDIRBÚAST FYRIR TRÚBOÐ
-Trúfastir meðlimir þurfa engu að kvíða. Þeir hljóta kraft frá blessunum Drottins og gjöf heilags anda.
-KIRKJAN ER ÁFRAM BYGGÐ Á FJÖLSKYLDUNNI

Fyrir þá sem vilja lesa meira af ræðu Uchdorf forseta þá er hana að finna á

http://www.kirkjajesukrists.is/frettir/article-view/article/serstoek-rastefna.html

Wohlgemuth Hjónin farin heim

Kæru vinir,
Mig tekur það sárt að tilkynna ykkur að Öldungur Wohlgemuth fékk hjartaáfall á Akureyri um helgina.Í samráði við trúboðsforseta og lækna Kirkjunnar í London og Salt Lake City var ákveðið að Wohlgemuth hjónin færu heim með fyrstu flugvél. Þau yfirgáfu landið nú í morgun og munu vera komin heim í fyrramálið að okkar tíma.
Wohlgemuth hjónin hafa gert mjög margt gott fyrir kirkjuna í þau 2 ár sem þau hafa verið hér, má þar nefna uppbyggingu bókasafns, tiltekt í allri sagnaritun, mynda og myndbanda safni kirkjunnar, vinna við að koma öllum vonarstjörnum og Líahona blöðum á tölvutækt form, þjónusta í greinarráði, stuðningur við allt söngstarf greinarinnar, og svo margt margt fleirra.
Þeirra verður sárt saknað.
Kær kveðjaÓlafur Einarsson greinarforseti

Monday, December 1, 2008

DESEMBER ER KOMINN!!

halló halló elskurnar mínar og Gleðileg Jól!!

Svona er dagatalið fyrir Desember.

Þrið 2.des er Trúarskóli klukkan 20:00
Binni Lee á Afmæli þannig að þeir sem vilja kíkja til hans eftir trúarskóla geta hist uppí kirkju og við förum þá strax klukkan 21:00 og syngjum fyrir hann ammalissönginn.

Fim 4.des er kóræfing klukkan 19:30 og svo Vinakvöld klukkan 20:00
Fös 5.des er svo Jólakvöld Líknarfélagsins fyrir þær dömur sem því tilheira, endilega komið með bolla og disk, smá desert til að deila og gjöf sem ekki kostaði meira en 500.-kr í pakkaleikinn okkar! Fjörið byrjar klukkan 19:30.

Þrið 9.des er Trúarskóli klukkan 20:00 en þeir sem vilja hittast með smákökur og piparkökur klukkan 19:30 eru velkomnir. Þetta verður síðast trúarskólabekkur ársins og við endum árið með stæl!

Fim 11.des verður kóræfing klukkan 19:30 OG svo síðasta spilakvöld ársins klukkan 20:00 svo hafið augun og eyrun opin fyrir því sem koma skal, þetta verður hið fínasta spilakvöld ef marka má veðurspánna!

Sun 14.des verður lukkupottur eftir kirkju (Sakramenntissamkoma byrjar klukkan 13:00) og byrjar hann klukkan ca14:15 en þar á eftir verður hin árlega jólakvöldvaka æðsta forsætisráðsins, sem ætti að koma öllum í svakalegt jólaskap!

þrið 16.des er planað að hafa alsherjar þjónustuverkefni! Er til betri leið til að minnast fæðingu Frelsarans en að fylgja fordæmi hans með þjónustu við meðbræður okkar, ég held ekki! ef jólakvöldvakan þann 14.des var ekki nógu jólaleg þá ætti þetta að koma hvaða skruggi sem er í jólafíling! hittumst uppí kirkju klukkan 18:30.

Fim 18.des er svo Jólavinakvöld klukkan 20:00 á Reykjvíkurvegi 22, 2.hæð í Hafnarfirði. Þetta verður svolítið eins og litlu jólin hérna í gamla daga, spilum spil, singjum jólalög og förum í pakkaleik, allir ættu að mæta með pakka sem ekki má kosta meira en 500.- kr innpakkaðan svo við getum farið í pakkaleikinn góða! Kakó og smákökur verða á boðstólnum!
Þeir sem vilja mæta á kóræfingu eru einnig velkomnir á Reykjavíkurveg 22, 2.hæð en kóræfing verður þar þetta kvöldið, sama tíma og venjulega, klukkan 19:30.


Kórinn syngur svo á Laugarveginum Laugardaginn 20.des kl 19:00 og aftur Þriðjudaginn 23.des.



English Summary

Institute is at 8pm on Tuesdays the 2nd and 9th of Dec. please come at 7:30 on the 9th and bring some cookies if you like.

Relief Society has their annual Christmas fun times on the 5th at 7:30pm. RS sisters are incouraged to come!

Outreach activities for this month are on Thursdays the 4th and 11th of December at 8pm following singing practice at 7:30, everyone is welcome!

on the 16th we will have a service project for those who want to participate it starts at 6:30pm and we will meet up at church.

the 18th of December will be our Christmas friend home evening at Reykjavíkurvegur 22. 2nd floor, in Hafnarfjörður. its at 8pm and for those who want to sing with us on Laugarvegur on the 20th and 23rd we will also have practice at Reykjavíkurvegur 22 at 7:30pm...everyone is welcome!

Monday, November 10, 2008

Garpalaugardagur s.l. Laugardag

Síðastliðin laugardag var haldinn Garpalaugardagur fyrir Eldri og Yngri deild trúarskólans og var mætingin voða góð. Þetta byrjaði allt með hugvekju frá Bróður Jens Andersen frá Kaupmannahöfn sem talaði um postulana og það sem við getum lært um frelsarann úr nýja testamenntinu. Eftir hugvekjuna var svo pöntuð Pizza fyrir allan hópinn sem við fórum létt með að klára! en eftir að allir höfðu troðið sig út á pizzu var haldið í Maríuhella þar sem við fórum í feluleik í hinum fullkomna feluleikjahelli. Fyrir þá sem ekki skilja hvernig þannig lagað er hægt að gera í helli þá mælum við með að þið fylgist með hvað er næst á dagskrá hjá okkur og komið svo næst þegar hellaferð er plönuð (sem ætti að vera bara handan við hornið þar sem þetta sló alveg í gegn!)
Því miður gleymdist alveg að taka myndir....ó well...

Friday, September 26, 2008

FRUMSÝNING!!

Nýjasta myndin okkar verður Frumsýnd á undan trúarskólanum Þriðjudaginn 30.September.

Fjölmennum og njótum þessa meistaraverks saman!


Hér er það sem verið er að segja um myndina




Þessari kvikmynd hef ég beðið eftir allt mitt líf! -Elvis


Þetta er mynd sem mun hreifa við hinum hörðustu! -Chuck Norris


Hreint meistaraverk!!!! -Allir hinir


Myndin verður, eins og áður sagði, sýnd Þriðjudaginn 30.September klukkan 19:30, rétt á undan Trúarskólanum sem handinn er á Ásabraut 2 í Garðabæ. Mætið hress með popp og gos og hláturtaugarnar tilbúnar fyrir ofurálag! Allir eru svo velkomnir í Trúarskólann klukkan 8.


Hér er slóð á trailerinn fyrir myndina

http://www.youtube.com/watch?v=OwXr0HKTgNc



Myndir af Maraþonleikum.



Jæja góðir hálsar, eftir skemmtilegt og viðburðaríkt kvöld er best að þakka fyrir sig!

Bæði liðin stóðu sig afskaplega vel í maraþonleikunum og frábært hversu allir voru good sports, bara gaman og ekkert vesen! Svo tókst með eindæmum vel að fest nýjustu kvikmyndina okkar á filmu.


Hér eru nokkrar myndir af leikunum









Thursday, September 25, 2008

A Place for Imperfect people

"Some are lost because they have strayed. Except for the Lord, we have all made mistakes. The question is not whether we will trip and fall but, rather, how will we respond? Some, after making mistakes, stray from the fold. This is unfortunate. Do you not know that the Church is a place for imperfect people to gather together—even with all their mortal frailties—and become better? Every Sunday in every meetinghouse throughout the world, we find mortal, imperfect men, women, and children who meet together in brotherhood and charity, striving to become better people, to learn of the Spirit, and to lend encouragement and support to others. I am not aware of any sign on the door of our meetinghouses that reads 'Restricted Entrance—Perfect People Only.' "

Joseph B. Wirthlin, "Concern for the One," Ensign, May 2008, 19

Tuesday, September 23, 2008

Útrásar maraþonleikar! (við allra hæfi!)



Jamms, það verða hópleikir á Fimmtudaginn (allir með einhverskonar keppnisanda í sér ættu að mæta!) og þá er náttlega bara skemmtilegra því fleirri sem við erum. Planið er að hafa tvö stór lið og reyna svo að rústa hinu liðinu, svo mætið hress, og helst ekki í sunnudagsfötum!!!

Klukkan: 19:30-22:30.........Hvar: Ásabraut 2, Garðabæ...........Hvenær: Fim 25.Sept.......Hverjir eru velkomnir: ALLLIR!! sérstaklega þú samt!.....Hvað á ég að mæta með: ekkert nema góða skapið og sjálfa/n þig!

ENGLISH SUMMARY

Thursday the 25th, at Ásabraut 2, at 7:30pm. Bring yourself and your perfect smile. We are playing group games, so the more the merrier!

Tuesday, September 16, 2008

Garpahelgi/Superweekend!


Garpahelgi verður helgina 19-20 sept og verður farið frá kirkjubyggingunni Ásabraut 2 á föstudaginn klukkan 17:15 (mæting klukkan 17:00) austur fyrir fjall í sumarbústað. Allir sem hafa færi á að keyra komi á bíl, aðrir eru beðnir að koma með bensínpening.

Þið þurfið ekkert að borga (nema leggja til í bensín) og engan mat að mæta með (nema þið viljið koma með nammi og snarl) og verið viss að mæta með ritningarnar, svefnpoka, loftdýnu og sundföt!

Við komum svo aftur í bæjinn á laugardagseftirmiðdegi.


Vinakvöld flyst þá yfir á föstudagskvöldið og verður í sumarbústaðnum!

sem sagt, ekkert vinakvöld á fimmtudaginn!!!


Superweekend will be held this weekend from the 19th to the 20th of September and we will leave from the church building at Ásabraut 2 on Friday at 5:15pm (please be at the church at 5pm so we can get people into cars and leave on time). We will be staying at a cabin about 45 minutes from town. Those who can bring a car and drive are asked to do so, others please bring gas money.

You will not have to pay for anything (except gas money) or bring any food (except if you wish to bring your own candy and snacks). Be sure to bring your scriptures, sleeping bag, air mattress and swimsuit!

We will be back in town on Saturday afternoon.


FHE will be moved to Friday night at the cabin!!

so NO FHE ON THURSDAY!!!

Myndir frá menningakvöldi






Tuesday, September 9, 2008

GEMEN!

Jæja Elskurnar mínar!!
þá er komið að trúarskólanum, þetta skólaár verður æði! Sóley (a.k.a besti kennari í heimi) er kennarinn okkar í ár og við förum í nýja testamenntið.
Endilega mætið klukkan 8 á Þriðjudagskvöldum uppí kirkju, Ásabraut 2 í Garðabæ.

Á fim verður svo spilakvöld og við sjáum svo hvort við getum ekki reddað einhverjum skemmtilegum spilum (ef til vill tölvuspilum).
Allir eru velkomnir svo er náttlega bara the more the merrier! við byrjum að spila klukkan 19:30 uppí kirkju, Ásabraut 2 í Garðabæ! mega gaman!

Well my Darlings!!
time for institute, this school year will be awesome! Soley(aka the best teacher in the world) will be our teacher this year as we study the new testament.
You are absolutely welcome to come every tuesday at 8 at church, Ásabraut 2 in Garðabær.

On Thursday we will have game night and see if we can bring some new exciting games (perhaps even PS games)
Everyone is welcome and of course the more the merrier! we start playing games at 7:30pm at church, Ásabraut 2 in Garðabær.

Tuesday, August 26, 2008

Menningakvöld/Culture night

KYRRAHAFSEYJAKVÖLD!

Hver veit eitthvað um Kyrrahafseyjarnar? eða Polynesíu? ....Tonga?

Allavega, ef þið viljið vita meira (og fá fríkeypis æðilsega skemmtun!) þá er menningakvöld næstkomandi laugardag (30.ágúst) á Ásabraut 2 í Garðabæ klukkan 19:00.

Allir eru velkomnir!

polynesian culture night, 7pm, Ásabraut 2, Garðabæ, August 30th. Good times for free and everyone is welcome!


Spilakvöld á FIM og Menningakvöld framundan!!!


jæja elskurnar,
á fimmtudaginn verður spilakvöld klukkan 19:30, Ásabraut 2. (Thursday, 7:30pm, Game night)

komið með eftirfarandi.(please bring...)

1.VIN!! (a friend)
2.ykkur sjálf (youself)
3.uppáhalds spilið og/eða myndirnar ykkar frá FIN (fav. game and/or photos from FIN)
4.kexpakka (a box of cookies)
5.VIN!! (a friend)

Thursday, August 14, 2008

Velkomin á Útrásarbloggið!

Kæru útrásarar,
þetta er nýja bloggið okkar þar sem allar uppl. verða settar ásamt myndum og fleirra skemmtilegu. Ykkur er velkomið að fylgjast grant með!
næst á dagskrá hjá okkur er Vinakvöld í næstu viku (Fim 21.ágúst kl 19:30) sem verður fyrir austan, á Selfossi.
Wohlgemuth hjónin koma með okkur og eru á bíl ef einhvern vantar far, svo eru hinir og þessir líka á bíl svo það ættu allir að geta reddað sér fari. Best að pakka í bíla og koma með bensín pening.
Vikuna þar á eftir verður FIN myndasýning svo komið endilega myndunum ykkar á cd diska og mætið hress með popp og bros á vör. þetta verður tilkynnt betur síðar.
Í síðasta lagi er svo Kyrrahafsmenningarkvöld (Hawaii, Tonga og þannig lagað) Laugardaginn 30.ágúst. þetta verður líka tilkynnt frekar síðar meir, en það má endilega byrja að bjóða fólki og taka kvöldið frá!

Basically, this is our new Outreach blog and this is what is coming up:
Thursday 21st of August-FHE in Selfoss at 7:30pm. if you need a ride the wohlgemuths have a car as well as some of the other young single adults, so just ask around and you should get a ride, remember to bring gas money.
Thursday 28th of August-Game Night where we will be watching each others FIN picture slide show, bring your Festinord photos on a cd and some pop corn and a smile. will be announced better later.
Saturday 30th of August- Polynesian culture night. This will be announced later as well, just make sure to reserve that evening for good food, good company and good fun! also, invite all your friends, it will be worth it!